27.11.2011 | 13:22
Rjúpnaveiðar
Vill benda á góða grein eftir Ferdinand Hansen um rjúpnaveiðar.
Skora á alla veiðimenn sem og aðra að lesa hana
finna má greinina hér: Grein eftir Ferdinand
|
Síðasti dagur rjúpnaveiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2011 | 14:08
Undarlegt
Með lögum nr. 63/1954 eru reglur
um fuglaveiðar rýmkaðar mjög og öllum íslenskum ríkisborgurum heimilaðar fuglaveiðar
í almenningum og afréttum utan landareigna lögbýla, enda gæti enginn sannað
eignarrétt sinn til þeirra. Heimild til dýraveiða í almenningum og afréttum utan
landareigna lögbýla, enda geti enginn sannað eignarrétt sinn til þeirra, er veitt íslenskum
ríkisborgurum og erlendum ríkisborgurum með lögheimili hér á landi með lögum
nr. 64/1994.85
|
Selja veiðileyfi í afrétti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2010 | 15:27
Forræðishyggja eða fyrirbyggjandi aðgerðir?
Foræðishyggja eða fyrirbyggjandi aðgerðir?
Það má held ég alveg deila hvort þetta sé.
Er hinsvegar ekki sammála að ungt fólk beri sjálft ábyrgð á sér, það er foreldra og forráðamanna að gera það, sem og yfirvöldum.
Hvar línan skuli skorin er ég ekki viss um, það er deginum ljósara að það þarf oft að "hafa vit fyrir" fólki.
en það má deila um hvort það sé réttmætt.
Ef reykingar eru til dæmis teknar fyrir þá var samfélagslegur kostnaður umfram tekjur árið 2000 um 19milljarðar.
Út frá því má spyrja sig eigum við þá að banna reykingar??
Gosstöðvarnar eru annað dæmi, er það ekki forræðishyggja að halda fólki frá gosstöðvunum?
Það að halda ósjálfráða einstaklingum frá sólbaðsstofum finnst mér ekkert stórmál og ungir sjálfstæðismenn ættu jafnvel að finna sér eitthvað þarfara málefni fyrir hendur, finnst þetta lykta af vinsældarkeppni....eða aprílgabbi ??
|
|
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.11.2009 | 11:29
Engir veiðimenn á ferð
Það er stór grundvallar munur á veiðimönnum og mönnum með byssur.
En í sjálfu sér er þetta ekkert skrítið að svona sé farið fyrir íslenskri veiðimenningu þar sem við ölum þetta sjálf upp.
Bara það að það taki innan við viku að öðlast réttindi til að eiga skotvopn og að mega fara veiða er svo algerlega út í hött að hálfa væri nóg, á hinum norðurlöndunum tekur þetta nokkra mánuði og þar fer alvöru kennsla fram en ekki bara einhver páfagauks lærdómur svona rétt til þess að standast eitthvað grín próf.
|
Rjúpnaskyttur sem kunna sig ekki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2009 | 19:10
Frændi flottur
Til hamingju með þetta frændi, glæsilegt hjá þér :)
|
Útskrift úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla ISAL |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2008 | 08:36
Skrýtið !!!
Af hverju þarf að kreppa að til þess að menn reyni að spara.
Skil ekki af hverju það var ekki hægt að sjá þennann sparnað fyrir þótt það hafi ríkt "góðæri"
Fávitastjórnunin í hnotskurn!!!
|
Allt of dýrt ratsjáreftirlit? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2008 | 11:11
slóð á hjólamyndir
ákvað að setja inn link á enduro hjólatúra sumarsins.
www.picasaweb.google.com/bloodarinn/LangisjRGSt2008# langisjór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2008 | 21:57
mont myndir
jebb, ákvað að skella inn tveimur sjálfhverfum og egógúrku myndum af bílnum.
Fór upp að kleifarvatni um helgina, lenti í smá snjó sköflum þarna upp frá. Tók líka fleirri myndir sem ég setti inn á flickr síðuna mína, þið getið klikkað ykkur á hana hérna til vinstri.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2008 | 09:53
Skautarnir hálfir á hilluna, svartur dagur í Íslensku Íshokký
Ég Hans Jörgen hef ákveðið að setja skautana "hálfa" á hilluna.
Þannig er mál með vexti að ég hef ákveðið að selja allan hokký búninginn að skautunum undanskildum.
Svartur dagur í heimi íshokký á íslandi hugsa sjálfsagt margir en því miður þá finn ég mig knúinn til þess að gera þetta þar sem pressan undan ágengum ljósmyndurum og öðrum áhengundum mínum varð einfaldlega of mikið.
Ég kveð þetta sport sem ég æfði fyrir cirka 4 árum yfir heilan vetrar mánuð með miklum söknuði.
Ég á margar minningar innan vallarins sem og utan og sendi ég mínum íshokkýbræðrum og systrum um allan heim kveðjur mínar nú þegar ég lyfti skautunum til lofts í hinsta sinn upp á hilluna þar sem þeir munu standa óhreyfðir um ókomna tíð.
Vertu sæl mín kæra íshokký veröld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.10.2007 | 17:02
Veiðistjórn????
Hvenær ætla þeir hjá skotvís að fara lifa upp í hlutverk sitt og fara þrýsta af alvöru á stjórnvöld á að fara stýra veiðum á Íslandi af alvöru!!!
Mér þykir það ekki mikil veiðistjórn að fækka veiðidögum og halda að það sé nóg.
Náttúrufræðistofnun, Umhverfisstofnun og skotvís ættu allir að bera saman bækur sínar til að miðla réttum og öruggum upplýsingum til umhverfisráðherra.
Það er náttúrulega fáranlegt að ekki skuli vera reynt að stemma stigum við fjölgun refs.
Það er ótrúlegt magn refs allstaðar á landinu og er hann í sögulegu hámarki en samt virðist stofnanir eins og náttúrufræðistofnun sem sér um rannsóknir á rjúpunni algerlega vera lokuð fyrir því að refurinn geti haft áhrif.
Eins er ekkert tekið í það þegar erlendir sérfræðingar koma til landsins og mæla með því að veiðar ættu að hefjast fyrr eða áður en náttúrlegt affall á sér stað.
Náttúrufræðistofnun radíó merkti rúmlega 30 rjúpur fyrir einhverjum tíma.
60% þess fugls var dauður eftir nokkra mánuð og allir dóu af völdum minks,refs eða kattar.
Og svo segja þeir ekki neinn sterk tengsl á milli fjölgun refs og fækkunar rjúpu....
Það eina sem talsmaður rjúpnarannsóknanna hafði að segja um þetta var það, að ekki ætti að reyna finna neinn blóraböggul eins og refinn.
Fyrir mér er engin að því menn eru einfaldlega að reyna benda á að fleirra en veiðar hafi áhrif á rjúpnastofninn.
Allir veiðimenn vita að veiðar hafa áhrif á rjúpnastofninn en við viljum bara reyna fleirri aðferðir en bara boð og bönn.
|
Formaður Skotvís: Veiðimenn eru mjög löghlýðinn hópur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)





ravenyonaz
semaspeaks
hallarut